| Vínland Hótel,.. góður kostur ef erindið er á Egilsstöðum eða einhverjum fjarðanna... |
|
 |
| | Verið velkomin á Vinland Hotel sem er fjölskyldurekinn gististaður 2 km norður af Egilsstöðum, nánar tiltekið í Fellabæ. | Vínland Hótel er staðsett í hjarta Fljótsdalshéraðs. Fyrir ykkur sem þurfið að reka erindi á Egilsstöðum eða á einhverjum Austfjarðanna, eða viljið í fríi njóta fegurðar Austurlands og Austfjarða er Vínland Hotel góður útgangspunktur. Egilsstaðir er höfuðstaður Austurlands og hér í þessu kyrrláta og fagra umhverfi býðst ferðafólki, matvörumarkaðir, sérverslanir, gallery veitingahús, kaffihús, Minjasafn Austurlands, Skjalasafn Austurlands, góð íþróttaaðstaða, gervigrasvöllur, útisundlaug, rennibrautir, heitir pottar, golfvöllur, hestaferðir og sigling á Lagarfljóti svo fátt eitt sé nefnt. Til að gera góða ferð til Egilsstaða og Austulands enn betri hvet ég ykkur til að heimsækja Vínland Hotel, þið eruð ævinlega velkominn og það er okkur ánægja að tryggja að vel fari um gesti meðan á dvölinni stendur. Það er ekki galinn kostur að taka hluta af sumarfríinu á Egilsstöðum, því megið þið trúa.. |
Gistiaðstaðan samanstendur af 6 smekklega tilhöfðum herbergjum. Herbergin, eru öll með sér inngangi sér baðherbergi, nettengingu, sjónvarpi, DVD spilara, og hraðsuðukönnu, einnig er þar te og instant kaffi. | | Aðstaða og aðbúnaður: | | Sér inngangur | | Wi-Fi internet tenging | | Sér baðherbergi | | Ísskápur | | Sjónvarp | | DVD spilari | | Te og instant kaffi | | Reyklaus herbergi | | | | |
Það er vissulega von okkar og trú að þið verðið fullkomlega ánægð með þau þægindi og hreinlæti sem við bjóðum upp á, ekki síður en fjöldi annarra okkar ágætu gesta, við hlökkum til að sjá ykkur :) Megi dagurinn verða ykkur farsæll.
Vínland, notaleg gisting á rólegum stað.
|
|